Vá ég er ekkert smá löt við að blogga - I know -
Ég get bara ekki beðið eftir næsta bolludegi:) ég og Guðrún Jóna ferðum nokkrar heiðarlegar tilraunir til að baka bollur...en það var e-ð sem klikkaði hjá okkur alveg TVISVAR sinnum, allt er er þrennt er :) en held að bolluuppskrift GÆTI bara ekki verið auðveldari, en ég vil bara kalla þetta byrjendamistök og stefnan er sett að hafa bara bollubasar á næsta ári...enda eru þetta með eindæmum góðar bollur hjá okkur...fólk talar um það :)
En er með þokkalegar strengi eftir spinning í gær... ég held ég sé þessi týpíska skorpu manneskja, sama hvað ég ætla alltaf að vera dugleg allt árið í kring, þá einhvernvegin fer ég aldrei fyrr en ég er komin með ALGJÖRT ógeð af þessu blessaða spiki sem hefur lagt ástfóstur við líkama minn, án þess að ég fái eitthvað um það ráðið, og áður en maður veit af er maður farin að lifa eins og bloddy Bridget Jones - næstum því -
Svo langar mig bara að nota tækifærið og óska sjálfri mér til hamingju með árangurin, 2 mánuðir síðan ég hætti að reykja :).... en er samt búin að eyða ÖLLUM sígópeningunum í eitthvða annað!!! Eyðslukló dauðans held ég bara, obbobobbb verð að fara að spara, byrja í dag!
Flakkarinn
Á ferð og flugi með Eddu

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim