sunnudagur, maí 25, 2003

Jæja þá er ég komin heim...og er bara nokkuð glöð með það. Er bara hjá Ölmu á Hertz...þar sem ég get ekki keyrt heim sjálf...þar sem ég var soddan bitta bara í kvöld og fékk mér nokkur hvítvínglös, svo ég bara bíð eftir að Alma klári!!!

Er nú frekar svekt að hafa misst af Júóvision keppninni, en ég átti að koma heim síðasta föstudag, og ætlaði að mæta surprise í júrópartý hjá Jane!!! En það breyttist fljótt á föstudag og við vorum send í flug um helgina, þetta var í fyrsta skipti held ég sem ég var fúl yfir því að vera ekki send heim, var búin að hlakka svo til! En amma elska tók þetta nú upp fyrir mig, veit ekki hvort ég sé sorgleg eða hvað að vera spennt yfir þessu, en ég hef bara aldrei heyrt lagið á ensku, kannski einu sinni á íslensku!


Hulda vinkona er að fara til Spánar víst núna í vikunni svo ég er rosa glöð að vera komin heim, aldrei að vita nema ég geti kíkt í heimsókn í sumar ef það verður rólegt í fluginu! Ætla allavega að njóta þess að vera heima vona að ég verði allavega út vikuna...hmmm væri ekki leiðinlegt að vera heima næstu helgi og tjútta smá... kemur í ljós! in sjalla

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim