sunnudagur, október 05, 2003

Búið að vera bara rokk og rólegheit alla helgina, og bara unnið!!! -Gaman-

En ég fór með Sunnu vinkonu og litla frænda hennar niður á tjörn á föstudagin að gefa öndunum brauð!!! Ég komst að því að þessar blessuðu endur og allir hinir fuglarnir sem búa þarna fá bara ALLT OF MIKIÐ að borða. Það er hreinlega ekki hægt að þverfóta þarna við tjörnina fyrir fuglaskít!! Mér finnst þetta bara ógeðslegt. Ég vissi ekki að þeir gætu skitið svona stóru, og svo heldur maður alltaf að þessi grey séu að svelta... en ef þið röltið aðeins um svæðið, þá kemur nú annað í ljós!´Maður mundi nú frekar halda að það hefði bara heil hjörð af rollum villst við tjörnina!!! ..... Kannski komið ágætt um skít... í bili allavega!(Róleg að hafa ekkert að tala um)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim