þriðjudagur, maí 18, 2004

Kannski komin tími til að drita einhverju niður hérna!

Er loksins komin heim.... eða reyndar síðan í byrjun maí sem er búið að vera æði.Eftir að hafa verið að vinna sem hvítur þræll eins og DV orðaði það í gær!
Evróvísion partý í Keflavík hjá Önnu og Högna á lau, hef ekki djammað í Keflavík síðan einhvertíman í fyrra frekar langt síðan en engu að síður var mjög gaman. Dró Kristján með mér í menninguna en hann skemmti sér nú bara vel.Enda ekki við neinu öðru að búast :)hehe

Sigrún systir var að koma heim frá Tælandi á fös og stelpan bara orðin bleikhærð jújú...bara hið besta mál hóst hóst!!!

Var að horfa á Survivor í gær mjög spennandi var nú að vona að Rúbert hefði unnið en svo eru þessi vinsældarverðlaun sem verða veitt líka víst ein milljón dollara og þar sem að ég er nú freeekar forvitin manneskja lét ég mitt ekki eftir liggja og tékkaði á CBS og hér getið þið séð hver fékk hina milljónina!!! Mjög skemmtileg síða alveg hreint...ef þetta hefur heppnast!

En það styttist óðar í heimsreisuna mína leggjum í hann frá Englandi 31.mai og verðum að til 10.júli. Ég verð með VIP vélina sem verður eflaust ekki leiðinlegt, var að heyra að Jennefer Aniston verður ein af farþegunum.úúúúú En það er víst búið að breyta vélinni þvílíkt komið dansgólf og allt þarna.Þetta á eftir að verða einhvað mjöööög áhugavert verkefni og get ég ekki sagt annað en að ég sé farin að hlakka smá til. Byrjum í Sri Lanka, Sydney, Melbourne,Tokyo, Peking, Delhi, Kairó, Cape town..........og listin heldur áfram endalaust....bara gaman.

En best að halda áfram að vinna, þangað til næst veriði góð

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim