Prestur og nunna staðin að verki í miðjum ástaleik á bílastæði
Kaþólskur prestur og nunna voru staðin að verki er þau voru í miðjum ástaleik á bílastæði flugvallar í Malaví. Þau voru áminnt alvarlega af dómara og ef þau sleppa fram af sér beislinu á ný næstu átján mánuði verða þau send í fangelsi þar sem þeirra mun bíða erfiðisvinna.
Dómsalurinn var þétt setinn þegar réttað var í máli hins 43 ára gamla malavíska prests og nunnunnar, sem er 26 ára gömul og frá nágrannaríkinu Zambíu.
Taktfast vagg Toyota Corolla-fólksbifreiðar á bílastæði alþjóðaflugvallarins í Lilongwe í Malaví vakti athygli fólks, sem leið átti framhjá bílnum, og lét það lögreglu vita að eitthvað gruggugt væri að gerast inni í honum. Þegar lögregluþjónar opnuðu bílinn blöstu prestur og nunna við þeim í stellingum, sem þóttu, að því er dómari í málinu sagði, ósiðlegar og alls ekki við hæfi fólks af þeirra stétt.
Nunnan sagði fyrir dómnum að hún harmaði yfirsjón sína en presturinn sagðist sem maður Guðs viðurkenna að sín hefði verið freistað af kölska.
Arthur Mtalimanja dómari féllst á afsökun þeirra en áminnti þau um að sem þjónar Guðs ættu þau að vera síðust til þess að misbjóða velsæmiskennd fólks á almannafæri. Að þeim orðum loknum dæmdi hann nunnu og prest til sex mánaða erfiðisvinnu í fangelsi ... en mildaði þó strax dóminn vegna iðrunar þeirra og sleppa þau við fangelsi ef þau haga sér siðsamlega næsta eitt og hálfa árið.
......Thar hafidi thad, mer finnst thetta frekar fyndin frett, og finn bara doldid til med folkinu!!!
Vid erum komin aftur til good old Manchester vorum ekki nema um 5 tima a leidinni til baka med nokkrum tofum. Thad hafdi kviknad i einum bil tharna a leidinni, fegin ad vera ekki i theim bil!
Thad var fint ad vera i Ramsgate i nokkra daga, skellti mer adeins a strondina, bordudum a Pizza Express bada dagana :) og svo skelltum vid okkur til Crawly i heimsokn til Gigju og Darrens. Grilludum saman og svo skelltum vid okkur a djammid med hinum oliupoddunum sem voru a base eda nenntu ut. Mjog skemmtilegt alveg... en ekki eins gaman ad thurfa ad fara a lappir kl 09 og keyra heim!
Er ekki enntha farin ad vinna!!! Kem kannski bara heim og vinn adur en eg fer i skolen....en HVAR??? Arg.
Any ways best ad fara gera einhvad, chiao
Flakkarinn
Á ferð og flugi með Eddu

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim