Jæja hún Sunna skvís á afmæli í dag og er bara orðin jafngömul mér...allavega í nokkra daga í viðbót :) - Sunna til hamingju með daginn - En það verður brjálað partý hjá henni í kvöld í tilefni dagsins!!! Alltaf gaman að skemmta sér í höfuðborginni :) Veit ekkert hvað ég á að gefa stelpunni, en var að spá í að gefa henni kannski bara koll það verða svo margir þarna í kvöld :) og engir stólar...eða næstum því! Já maður á aldrei of mikið af kollum, og ég mundi vera glöð með að fá koll í afmælisgjöf þó svo að það væri bara fyrir eitt kvöld, en þetta er nú engin lokaákvörðun heldur!!! En Sunna var að segja að Valdi og Pétur komi og Valdi ætlar að mæta með gítarinn...ekkert smá langt síðan ég hef farið í gítarpartý, svo að kvöldið lofar bara góðu held ég, det kommer i ljus!!....Langar geðveikt mikið að kaupa mér ný föt, kannski bara gott að ég sé að vinna í allan dag, það er kannski e-ð sign! hmmmm - Sunna ég er hætt við að gefa þér koll - ...bara svo þú vitir það :)
Flakkarinn
Á ferð og flugi með Eddu

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim