þriðjudagur, október 07, 2003

Dúrírúrírúrúrúrú! Snjókorn falla, á allt og alla.
Já það er að snjóa...reyndar bara smá, en mér er alveg sama. Ætli ég þurfi ekki bara að fara kaupa mér kraftgalla eða e-ð þá, sama hversu vel ég hef klætt mig, þá hef ég nú ekki sluppið við að fá kvef!
Get varla beðið eftir því að komast út núna, og jól í Saudi Arabíu, hljóma kannski ekki vel... en eitt er nú samt alveg víst, að mér verður sko ekki kalt, ég held að það sé nú alveg deginum ljósara!

Heyrði að hann Matti hefði verið tekinn allsvakalega í bakaríið á FM 957, vá hvað hann átti það skilið, er liggur við miður mín yfir að hafa sofið yfir mig og misst af þessu öllu sama. Heyrði að kappinn hefði bara næstum farið að skæla fyrst þegar hann heyrði þetta :)
En hann er nú þekktur fyrir að ljúga að fólki og hrekkja mann og annan svo það er nú vonandi að hann fari nú að róast greyið!

Brjálað að gera í kvöld, mataboð fyrs og svo fluffu saumó á eftir.... nóg af slúðri úr öllum áttum bara, gerist ekki betra!

Smá hugleiðing svona í lokin... hvort ætli sé vandræðilegara, að hitta kvensjúkdómalæknirin þinn sem þú varst hjá í gær, í sundi, eða komast að því að læknirinn sem er búin að vera kíkja skoða ristilinn á þér hægri og vinstri undanfarið, búi í sama húsi og þú???
Bæði örugglega frekar óþæginlegt en mér þetta ekkert smá fyndið!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim