föstudagur, október 08, 2004

Jæja þá...kannski komin tími til að henda hér inn nokkrum línum eftir 2ja mánaða ritstíflu!!!

Er semsagt komin heim og sest á skólabekk...ótrúlegt en satt :) get ekki stungið af núna haha.
Við Kristján erum búin að koma okkur vel fyrir á görðunum..lítið en kósý og alveg nóg þar sem að hann skilur mig alltaf eftir eina heima í 21 dag í hverjum mánuði!!! En best að vera ekkert að kvarta því hann er að koma heim í 5 vikur :) Kallinn er að fara á námskeið sko!

En annars er búið að vera nóg að gera í skólanum...og vinnuni líka, er í 2 vinnum með skóla...og var boðin sú 3ja um dagin... nóg að gera sko!
Ég og Arna systir erum búnar að vera vinna í ritgerð á fullu og stefnum á því að klára hana í næstu viku, þá tekur bara einhvað annað við!

En svo er það bara Idolið í kvöld, kíki til ömmu og afa í það, langar til að fá mér stöð 2 bara út af þessu rugli! ...En jæja best að halda áfram að afgreiða kerrur :) Tóm gleði, góða helgi!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim