Oh ég hlakka ekkert smá til, fer á morgun til London og þaðan til Parísar, Gígja ætlar að vera búin að kæla hvítvínið fyrir okkur...en bíst samt ekkert við því að getað djammað, held að það verði nóg að gera bara að fljúga, en held að það séu alveg nokkrir samningar í gangi þar núna, gaman gaman! En er búin að vera á fullu alla vikuna að reyna að undirbúa hvað ég eigi að taka með og svona enda örugglega með 100 kg eða e-ð! En það var svaka stuð á okkur í gær stelpurnar komu í smá kveðju kaffi heima í gærkveldi og nóg um slúður...maður verður nú að hafa smá nesti með sér út :) en það var mjög gaman, og allir að fjölga sér, það eru 3 stelpur ófrískar í saumó ekkert smá gaman, 4 dagar á milli Önnu og Berglindar og svo er Ásta í okt.....Ekki nóg með að maður er að safna fyrir afmælisgjöfum þá eru komnar 3 sængurgjafir ofan á það :) By the way ég skrifa adressuna mína úti bara á bloggið svo þið getið sent mér gjafir 5.apríl :)
Svo í kvöld þá er það kaffihús með Sunnu og Rögnu í kvöld, og út að borða með fjölskyldunni og að pakka...úffff allt of fáir klukkutímar í sólahringinum:) Þetta er svo týpískt að þegar ég fer út er ég alltaf að alveg þangað til ég fer út á flugvöll liggur við, sama hvað maður hefur mikinn fyrirvara!!!
Flakkarinn
Á ferð og flugi með Eddu

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim