Er alveg að fara fá ógeð að tala í síma... þótt ótrúlegt sé! En verð farin út um helgina aftur hvort eð er svo þetta er kannski allt í lagi!
Kom heim frá Svss á sunnudag en var að fljúga um helgina með írska farþega til Sviss til að fylgjast með leiknum 'irland vs Sviss!
Verð að segja að þetta fólk er hrein snilld. Held að þeir hafi verið fullir frá föstudegi til sunnudags. Við vorum í bæ sem heitir Basel en það sást ekki í bæjarbúa fyrir Írum en það voru um 9000 írar þarna. Ég verð bara að komast til Írlands yfir eina helgi og komast á ekta írskan pöbb.
Er svo að fara til Maroko um helgina að fljúga í viku til Saudi Arabíu á milli, fínt að komast í smá hita!
Er svo að vonast til að geta ná allavega einni helgi hérna heima... það er varla pláss fyrir meira áfengi uppí skáp, en Edda sleppir samt aldrei að kaupa tollin, hell no. En það fer nú alveg að koma tími á partý á Vesturgötunni.
En ég er nú ennþá að reyna losa mig við vindla, og ef það er einhver þarna úti sem langar í kúbu vindla endilega kauptu þá alla - NÚNA -
Hef ekki ennþá freystast til að reykja þá.. þar sem það eru nú komnir rúmir 9 mánuðir síðan mín hætti að reykja, jaaa það er nú bara heil meðganga.
En hún 'Asta vinkona mín var einmitt að eignast barn, Óttar Geir sem verður algjör kvennabósi þar sem Berglind og Anna Steinunn áttu báðar tvær prinsessur, þannig að það verður hart barist!!!
Var að sjá það að linkurinn hennar Berglindar var að koma inná síðuna mína, en hún er í Ameríkunni í námi eina önn, gaman að fylgjast með föngunum...setti hann inn fyrir mánuði síðan eða e-ð, kerfið er e-ð slow!
Flakkarinn
Á ferð og flugi með Eddu

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim