miðvikudagur, febrúar 26, 2003

Jahérna hér það er ekkert smá gott veður úti, held að ég fari bara og fái mér ís á eftir. Var að skoða síðunahjá Ástu og Togga og haldiði að það hafi ekki bara verið jarðskjálfti hjá þeim þarna úti, hann byrjaði víst einhverstaðar í Frakklandi og Sviss held ég og mældist 5,3 !!! 'Eg hefði allavega EKKI verið til í að vera þarna!!!
Vá ég komst að því að ég var orðin ekkert smá þreitt eftir allt þetta flug um dagin...svaf bara í heila 13 klukkutíma, held ég hafi sofið svona mikið seinast bara þegar ég var ungabarn:) en það var ekkert smá næs I tell you! En allavega þá er Brúskí í kvöld,verð að fara framkalla myndirnar að utan, huhumm! Hlakka til að sjá hvað er á þessum myndum:) Alma mér fannst samt ýkt gaman að passa, bara eins og alltaf:)
a tout a l´heure

mánudagur, febrúar 24, 2003

Loksins komst ég á netið, og þá komin aftur heim til Íslands! Ég trúi því bara ekki að ég hafi verið í uppáhaldsborginni minni, París í 8 daga og ekki getað einu sinni komist á kaffihús einu sinni hvað þá netkaffi, en svona er þetta víst stundum í fluginu.... ég segi það nú ekki við kíktum út eina kvöldið sem við vorum ekki að fljúga á rosa fínan stað Deuplex, endilega kíkiði ef þið eigið leið fram hjá einhvertíman :) En vá ég ákvað nú að fara til Parísar því ég vissi að það væri verið að fljúga til Kúpu, og þar sem ég hef nú aldrei komið þangað var þetta bara hið besta mál...nema hvað að áhöfnin mín fór aldrei þangað meðan ég var þar heldur dagin sem ég fór heim TÝPÍST alveg, ég fékk bara flug til Guadaloupe og Boston en maður fær víst ekki alltaf allt sem maður vill er það, ég hef nú rekið mig ansi oft á það!!! En samt sem áður þó það sé hundleiðinlegt að gista endalaust á hótelum uppá flugvelli og svona þá var þetta allt mjög gaman, kom með þessa fínu kúlu á hausnum með mér heim frá parís, marblett, nokkur moskítóbit og smá bikinífar...er hægt að biðja um eitthvað fleira.

Og svo bættist auðvita í vínskápinn tollurinn...verð að fara gera e-ð í þessu það fer ekki að vera pláss fyrir allt þetta áfengi sem ég er farin að sanka að mér en virðist aldrei geta drukkið. Hulda var nú að stinga uppá því að ég ætti að halda uppá afmælið mitt, trúi því ekki að ég sé að verða 25. SHIT. Sjáum til en það yrði samt gaman...sjáum bara til hvort ég verði heima þá eða hvað! Best að fara að huga kannski bara að því hvað ég vilji í afmælisgjöf, þar sem þetta er nú stórafmæli vil ég bara stórar og frekar dýrar afmælisgjafir,en ég efast ekki um að þið hafið nú öll verið búin að ákveða það svo bara takk fyrir það og ég hlakka til að fá alla flottu pakkana frá ykkur :)

Allavega verður saumó hjá Jane í gettóinu á miðvikudaginn, hef nú ekki orðið svo fræg að hafa komið þangað ennþá svo þetta er nú doldið spennandi hlakka bara til og gaman að bera saman kúlurnar á Önnu og Berglindi en það eru víst bara 2 eða 3 dagar á milli þeirra svo ég er strax farin að leggja fyrir fyrir sængurgjöfum handa þeim:)

En A bien tot

föstudagur, febrúar 14, 2003

Vá hvað það er gaman að hanga svona í vinnunni!!! Var að tala við Sunnu....og fá smá leiðbeiningar í gegnum þetta blogg :) er enginn gúrú á þessum tölvum, held að það sé nú alveg deginum ljósara, en hún sagði að það væri vont veður!!! verð bara ekki vör við neitt í þessari blessuðu flugstöð, nema hvað að ég er ekki frá því að það sé kaldara hér inni en úti. Held að fólkið sem sjái um loftræstinguna, kunni bara alls ekki að stilla hana, nema þau séu bara öll svo spikfeit að þeim er bara aldrei kalt! Maður verður allavega bara að klæða sig upp liggur við áður en maður fer inn í bygginguna!

Allavega get ég bara ekki beðið eftir því að komast út morgun...þó það sé nú örugglega kaldara í París en hér, að þá efast ég ekki um að það sé gott veður á Kúbu, vá hlakka ekkert smá til að koma þangað, hef aldrei komið þangað áður! ... og fínt að nota vetrafríið mitt í að fljúga bara og fá aukapenge, sem ég er nú vanalega ekki í miklum vandræðum með að eyða. Er meira að segja farin að hugsa hvað ég geti keypt á Kúbu!!! Er einmitt bara búin að vera í því að kaupa nýtt í herbergið mitt, er komin með leið á þessu gamla og var á fullu að setja saman kommóðu og hillur í gær, kom sjálfri mér bara á óvart svei mér þá hef alltaf látið aðra um þessa hluti :) og þar sem ég er nú hætt að reykja 7,9,13, hugsa ég bara allt sem ég kaupi í sígarettupökkum svona til að réttlæta þetta allt saman, en ég er semsagt búin að eyða sem samsvarar 3 reykingamánuðum, svo ég verð kannski að fara slaka á það er bara rúmur mánuður liðin síðan ég hætti : )

En var nú samt búin að plana að detta bara í það um helgina með vinum mínum...ef ég á einhverja eftir, er búin að vanrækja allar mínar vinkonur í langan tíma, hef ekki djammað með þeim síðan í águst á Sálarballinu í Stapanum, vá langur tími, er búin að eyða öllum mínum tíma annaðhvort erlendis eða í flugstöðini að vinna af mér meira og minna í 6 mánuði.
Svo tók ég það stóra verkefni að mér fyrir tveim vikum síðan að passa tvö börn meðan foreldrar þeirra væru erlendis, 4 og 11 ára og vá þetta er sko full vinna og aukavinna og bara allt, ég stoppaði bara ekki, svaf ekki út í 2 vikur, elda á hverjum degi, tína föt af gólfinu, þvo þvott......... vá listinn er bara endalaus og svo má líka alltaf gera ráð fyrir allskonar áföllum, hamsturinn dó og það var þvílík sorg á heimilinu... og maður veit nú kannski ekki alveg hvernig maður á að snúa sér í svoleiðis. Það varð náttúrulega að vera jarðaför og allur pakkinn, en netta gaman af þessu samt, þó ég sé frelsinu fegin að vera engum háð í dag, nema þá bara mér og geri bara það sem ég vil þegar ég vil, eða næstum því. nóg af bulli í dag þangað til næst Au revoir

fimmtudagur, febrúar 13, 2003

Jæja þá er ég byrjuð að blogga eins og allir hinir. Ég er einmitt á leiðinni út á laugardaginn með Atlanta þar sem ég er flugfreyja(í aukavinnu) og hér getið þið fylgst með mér. Mér þykir einmitt rosa gaman að ferðast og er algjör flakkari í mér.

Ég vil þakka henni Sunnu minni fyrir að þetta hafi verið hægt :)