föstudagur, mars 28, 2003

Oh ég hlakka ekkert smá til, fer á morgun til London og þaðan til Parísar, Gígja ætlar að vera búin að kæla hvítvínið fyrir okkur...en bíst samt ekkert við því að getað djammað, held að það verði nóg að gera bara að fljúga, en held að það séu alveg nokkrir samningar í gangi þar núna, gaman gaman! En er búin að vera á fullu alla vikuna að reyna að undirbúa hvað ég eigi að taka með og svona enda örugglega með 100 kg eða e-ð! En það var svaka stuð á okkur í gær stelpurnar komu í smá kveðju kaffi heima í gærkveldi og nóg um slúður...maður verður nú að hafa smá nesti með sér út :) en það var mjög gaman, og allir að fjölga sér, það eru 3 stelpur ófrískar í saumó ekkert smá gaman, 4 dagar á milli Önnu og Berglindar og svo er Ásta í okt.....Ekki nóg með að maður er að safna fyrir afmælisgjöfum þá eru komnar 3 sængurgjafir ofan á það :) By the way ég skrifa adressuna mína úti bara á bloggið svo þið getið sent mér gjafir 5.apríl :)
Svo í kvöld þá er það kaffihús með Sunnu og Rögnu í kvöld, og út að borða með fjölskyldunni og að pakka...úffff allt of fáir klukkutímar í sólahringinum:) Þetta er svo týpískt að þegar ég fer út er ég alltaf að alveg þangað til ég fer út á flugvöll liggur við, sama hvað maður hefur mikinn fyrirvara!!!

þriðjudagur, mars 25, 2003

Ég hels að það sé alveg deginum ljósara að ég er sko engin mega bloggari...en ég er alltaf að reyna!!! Svaka stuð um helgina var að passa hann Róbert minn á föstudagskvöldið og við héldum okkur til mikillar skemmtunar smá "partý" en það þarf ekki að vera meira en kók liggur við á boðstólnum þá heitir það partý...hann er algjör dúlla strákurinn:) Á laugardag skelltum ég og Anna dúlla okkur í höfuðborgina og fengum okkur ís með Huldu. Anna er orðin ekkert smá myndarleg með kúluna sína sem fer óðum stækkandi, en svo um kvöldið fórum við á kaffi Duus...þetta er orðið doldið sorglegt þegar aðal skemmtistaðurinn er kaffihús, en þetta var bara fínt og enduðum svo á Casino, dapur staður og stríðið í beinni!!! Fór svo á leikin í Keflavík á sunnudagin með Sunnu, Imbu og Guðrún Jónu og guð minn góður hvað þetta var slappt hjá Njarðvík, mætti halda að þeir hefðu bara verið að hvíla sig fyrir næsta leik!!! Vona að þeir standi sig betur þá greyin!!! En nú er það komið á hreint...ég er að fara til Parísar á laugardagin og ég hlakka ekkert smá til...vona bara að allir samningarnir standist þarna úti, svo maður komi nú ekki heim með skottið á milli lappana!!! Það væri frekar súrt, en vá á eftir að gera allt og bara nokkrir dagar þangað til yyyyeeeehaaaaa. En a bien tot

föstudagur, mars 14, 2003

Jæja hún Sunna skvís á afmæli í dag og er bara orðin jafngömul mér...allavega í nokkra daga í viðbót :) - Sunna til hamingju með daginn - En það verður brjálað partý hjá henni í kvöld í tilefni dagsins!!! Alltaf gaman að skemmta sér í höfuðborginni :) Veit ekkert hvað ég á að gefa stelpunni, en var að spá í að gefa henni kannski bara koll það verða svo margir þarna í kvöld :) og engir stólar...eða næstum því! Já maður á aldrei of mikið af kollum, og ég mundi vera glöð með að fá koll í afmælisgjöf þó svo að það væri bara fyrir eitt kvöld, en þetta er nú engin lokaákvörðun heldur!!! En Sunna var að segja að Valdi og Pétur komi og Valdi ætlar að mæta með gítarinn...ekkert smá langt síðan ég hef farið í gítarpartý, svo að kvöldið lofar bara góðu held ég, det kommer i ljus!!....Langar geðveikt mikið að kaupa mér ný föt, kannski bara gott að ég sé að vinna í allan dag, það er kannski e-ð sign! hmmmm - Sunna ég er hætt við að gefa þér koll - ...bara svo þú vitir það :)

sunnudagur, mars 09, 2003

Haldiði að hún Irma hin ógurlega hafi ekki verið að fara heim til sín! Hún sá Séð og Heyrt blaðið með mynd af honum Hálfdáni sem skoraði á hana í Djúpu lauginni um helgina, sem mér fannst bara frekar fyndið... en allavega þá er hún Irma gella ekkert of sátt við hann :) Hún keypti eitt stykki blað og sagði mér að hún HATAR Hálfdán, svo komu hinir " box félagar" hennar og spurðu mig hvort hann væri e-ð frægur á klakanum! Mér sýndist slagurinn hjá þeim bara hafa endað vel...en kannski var það bara fyrir áhorfendur. En gellan er enginn smá rumur samt...finnst mér allavega!

föstudagur, mars 07, 2003

Jæja loksins komin í helgarfrí en held ég taki því samt bara rólega. Ætla að reyna að rata í leikfimi eða e-ð!!! Hlustaði á símaatið í morgun á FM 957 en það var endurflutt frá því í gær, frekar fyndið. Matti skratti lét fara ekkert smá illa með Vignir..ekki í fyrsta skifti kannski...greyið Vignir en þetta var alveg brilliant samt og er Matti viss um að þetta sé besta at ársins!!! Og er líka viss um að þetta verði spilað doldið lengi á FM, kemur í ljós...en gaman að vita að hann hefur ekki sofið hjá karlmanni: ) Ég er viss um að kærastan hans sé líka nett ánægð með það :)
Var að skoða einhverja flakk síðu og kíkti á utanríkisráðuneytissíðuna, þ.e. í sambandi hvaða lönd maður þarf visa inní og hver ekki... þar sem mér og Huldu var kastað útúr lestinni við landamæri Júgoslavíu og Makedoniu á interrailinu okkar!!! Lítur út fyrir að tollararnir í Makedoniu eru ekki alveg að standa sig, því við fórum í gegnum landið fram og til baka og fengum 4 sinnum stimpla í vegabéfið frá þeim...samt þurfum við visa! Júkkarnir afturámóti voru með þetta á hreinu og hentu okkur í rottuklefan - fíflin - Þannig að þeir sem eru á leiðinni einhvert, endilega tékkið á þessu!!! Langar alveg ÓTRÚLEGA mikið að komast út núna, vona að það verði bara á næstu dögum eða e-ð... kemur í ljós! daddaraaaaa

miðvikudagur, mars 05, 2003

Vá ég er ekkert smá löt við að blogga - I know -
Ég get bara ekki beðið eftir næsta bolludegi:) ég og Guðrún Jóna ferðum nokkrar heiðarlegar tilraunir til að baka bollur...en það var e-ð sem klikkaði hjá okkur alveg TVISVAR sinnum, allt er er þrennt er :) en held að bolluuppskrift GÆTI bara ekki verið auðveldari, en ég vil bara kalla þetta byrjendamistök og stefnan er sett að hafa bara bollubasar á næsta ári...enda eru þetta með eindæmum góðar bollur hjá okkur...fólk talar um það :)
En er með þokkalegar strengi eftir spinning í gær... ég held ég sé þessi týpíska skorpu manneskja, sama hvað ég ætla alltaf að vera dugleg allt árið í kring, þá einhvernvegin fer ég aldrei fyrr en ég er komin með ALGJÖRT ógeð af þessu blessaða spiki sem hefur lagt ástfóstur við líkama minn, án þess að ég fái eitthvað um það ráðið, og áður en maður veit af er maður farin að lifa eins og bloddy Bridget Jones - næstum því -

Svo langar mig bara að nota tækifærið og óska sjálfri mér til hamingju með árangurin, 2 mánuðir síðan ég hætti að reykja :).... en er samt búin að eyða ÖLLUM sígópeningunum í eitthvða annað!!! Eyðslukló dauðans held ég bara, obbobobbb verð að fara að spara, byrja í dag!