mánudagur, nóvember 10, 2003

Afmælisbarn dagsins ku vera Hulda Sævarsdóttir vinkona mín en hún er orðin 25 ára. Fór í afmælispartý til hennar á laugardagskvöld, hún tók fyrir okkur smá magadanssýningu, sem var mjög flott, góður matur, og frekar langt síðan við höfum hist allar vinkonurnar og djammað saman. Fórum á einhvern nýjan skemmtistad Pravda... rosa gaman en held að við höfum öll verið farin heim um 3 leitið... veit ekki hvort að það sé aldurinn sem sé farin að segja til sín eða hvað... en ef maður fer að djamma með 3 pörum þá getur þetta endað frekar snemma!!! Án þess að ég móðgi neinn!!

En er komin á fullt bara í símavinnuna og fer svo til Dublinar á fimmtudag með Íslendinga í helgarferð verst að ét kem heim sama dag, væri alveg til í að vera þar yfir helgina!

Vinnan mín var að flytja þar sem DV fór á hausin og við vorum í sama húsnæði, sem er nú bara frekar gott þar sem það tekur mig bara 3 mín að labba í vinnuna hahaha. En ég gat nú ekki annað en hlegið þegar við vorum að flytja, þá var fólk að koma og gá hvort þau gætu sótt vinninga sem þau áttu hjá DV!! Ég hélt að það færi ekki á milli mála að þau væru hætt, allt slökt og við að pakka á fullu... en neiii, sumir hafa nú samt fyrir því að tékka!!! Fólk sko

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim