föstudagur, nóvember 14, 2003

Heyrðu, ég skellti mér á söngvakeppni FB á Nasa á miðvikudagskvöld þar sem að hún Ingibjörg systir mín var að syngja eins og engill : ) Sem er ekki frá sögu færandi nema hvað að þetta var nú bara ein fyndnasta keppni sem ég hef farið á og ekki nóg með það, að þá er hann Arnar Dór, strákurinn sem var rekinn úr Idol í skólanum og voru þeir búinir að plata hann til að taka lagið í keppninni í hléiinu. Nema hvað að hann kom þarna uppá svið, en engin hljómsveit og þeir vildu ekki leifa honum að fá hana!!!Sögðu honum að hann gæti sungið án hennar, svona bara eins og hann gerði fyrst í Idol... þetta var frekar skondið en ég vorkendi honum doldið þarna!!! En hann lét þetta nú ekkert á sig fá og tók Bo Halldórs!!!
Svo var komið að verlaunaafhendingunni... sem var nú ekki að verri endanum, en þau voru hvorki meira né minna en víbradorar, sleipikrem og handjárn!!! Ekki man ég eftir öðru eins í skólanum mínum!!! Áfram FB haha

En á núna að vera gera skoðanakannanir, en fólk gerir ekki annað en að skamma mig fyrir að hringja því þau eru að horfa á Idol... hvað annað!

Feitt djamm annaðkvöld, afmæli hjá Ellen. Tóm gleði!

En held að ég sé að fara skella mér í Karabíska í viku í des... ekki slæmt það svona áður en ég fer í ástandið í Saudi Arabíu... í 3 mánuði. ó mæ god!!!

Er

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim