laugardagur, nóvember 22, 2003

Well well well, það gerist bara ekki neitt þessa dagana. Fór í afmæli til hennar Ellenar síðustu helgi... þvílíkt stuð, var meira einsog Atlanta partý en mikið dansað...og drukkið. Forum á Nasa til að byrja með, en vorum ekki lengi þar sem það var bara eingin þar! Og enduðun á Pravda og var dansað fram eftir öllu! Var orðið svo illt i löppunum að ég var að láta skutla mér upp Vesturgötuna!!! Gott að vera flutt niður í miðbæ... og geta ekki labbað heim til sín svo hmmm!
Sunnudagurinn var svo bara kósý náttfatadagur í sófanum, segi ekki meir! Hefur alveg liðið betur um ævina! Hef einu sinni fengið ógeð að öllu svona jóla eitthvað, en það var nú bara þegar ég var að vinna í jólmarkaðinum í Stapafell og varð að hlusta á jólalög frá 9-21 og syngjandi og dansandi jólasveinar sem krakkarnir voru alltaf að kveikja á... oj ég var að meygla!!! Ekki að djóka

Fer svo út næsta föstudag til Parísar, get ekki beðið, og fer þaðan til Dóminíska lýðveldisins í viku, fínt að komast í smá sól fyrir jólin! En var að heyra það að ég "fæ" að vera heima um jólin. En við förum ekki fyrr en annan í jólum til Saudi Arabíu. Svo ég get haft jólaskarautið uppi kannski í 2 vikur í ár, en ég ´tla samt ekki að gera eins og nágranni minn hann Felix Bergsson, en hann er búin að setja upp seríur á húsið sitt, sem fer bara frekar mikið í mig... það er nú bara nóvember!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim