Well well well, það gerist bara ekki neitt þessa dagana. Fór í afmæli til hennar Ellenar síðustu helgi... þvílíkt stuð, var meira einsog Atlanta partý en mikið dansað...og drukkið. Forum á Nasa til að byrja með, en vorum ekki lengi þar sem það var bara eingin þar! Og enduðun á Pravda og var dansað fram eftir öllu! Var orðið svo illt i löppunum að ég var að láta skutla mér upp Vesturgötuna!!! Gott að vera flutt niður í miðbæ... og geta ekki labbað heim til sín svo hmmm!
Sunnudagurinn var svo bara kósý náttfatadagur í sófanum, segi ekki meir! Hefur alveg liðið betur um ævina!
Fer svo út næsta föstudag til Parísar, get ekki beðið, og fer þaðan til Dóminíska lýðveldisins í viku, fínt að komast í smá sól fyrir jólin! En var að heyra það að ég "fæ" að vera heima um jólin. En við förum ekki fyrr en annan í jólum til Saudi Arabíu. Svo ég get haft jólaskarautið uppi kannski í 2 vikur í ár, en ég ´tla samt ekki að gera eins og nágranni minn hann Felix Bergsson, en hann er búin að setja upp seríur á húsið sitt, sem fer bara frekar mikið í mig... það er nú bara nóvember!
Flakkarinn
Á ferð og flugi með Eddu

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim