þriðjudagur, desember 02, 2003

Jæja það hlaut að koma að því að ég yrði mamma!!!
.......Eða næstum því!

Er búin að vera með nett samviskubit þegar ég er að gera þessa blessuðu skoðanakönnun um hjálparstarf víðsvegar um heiminn. Þannig að ég lét verða að því að styrkja barn, einhvað sem ég er búin að vera á leiðinni að gera síðan ég var 18 ára eða einhvað! Betra er seint en aldrei... held að þetta lýsi mér bara þokkalega! Var að "panta" barn frá Banglades, sem að mér finnst alveg rosa hentugt þar sem ég er nú oft að fljúga þangað frá Saudi Arabíu í pýlagrímafluginu, og get þá farið og heimsótt þessi barnaþorp... og barnið mitt:)

En það styttist í að ég fari að leggja í hann þangað, en samt ennþá styttra í karabíska hafið, fer á föstudag til Parísar sem gæti bara ekki verið á hentugri tíma, á eftir að kaupa nokkrar... eða allar réttara sagt jólagjafirnar! Var svona að vona að það væri allt á kafi í snjó og svona þegar ég færi en sýnist nú ekkert ætla að rætast úr því!!!

Síðasta fimmtudag kíkti ég með Andreu á Felix, nema hvað að þar var kominn saman föngulegur hópur flugvirkja hjá Atlanta, við ætluðum bara rétt að kíkja, en það var nú eitthvað lengra en það, svo þegar það var búið að loka, ákvað hann Gulli að það væri nú hentugt að halda partý heima, jújú, húsið var ekki lengi að fyllast! Smá upphitun fyrir pílagrímaflugið... bara gaman!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim